Edduverðlaunin 2020
•Edduverðlaunin 2020, uppskeruhátíð íslenska sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðarins sem ÍKSA stendur fyrir árlega voru veitt í sjónvarpþætti á RÚV þriðjudagskvöldið 6. október. Upphaflega var ráðgert að halda hátíðina með hefðbundnum hætti í mars sl. en fresta þurfti vegna COVID-19 faraldursins.
Að þessu sinni voru veitt verðlaun í 26 flokkum sem kosin voru af meðlimum ÍKSA, auk verðlauna fyrir sjónvarpsefni ársins sem eru áhorfendaverðlaun og voru valin í rafrænni kosningu. Þá voru árleg Heiðursverðlaun Eddunnar einnig veitt og komu þau í hlut Spaugstofunnar að þessu sinni.
Hér að neðan er listi yfir sigurvegara Eddunnar 2020:
Barna- og unglingaefni ársins
Goðheimar
Framleitt af Netop Films og Profile Pictures
Frétta- eða viðtalsþáttur ársins
Kveikur
Framleiðandi RÚV
Heimildamynd ársins
Vasulka áhrifin
Framleiðendur Sagafilm og Krumma films
Kvikmynd ársins
Agnes Joy
Framleiðandi Vintage Pictures
Leikið sjónvarpsefni ársins
Pabbahelgar
Framleiðendur Zik Zak og Cubs Productions
Menningarþáttur ársins
Kiljan
Framleiðandi RÚV
Mannlífsþáttur ársins
Svona fólk
Framleiðandi Krumma films
Skemmtiþáttur ársins
Áramótaskaup 2019
Framleitt af Republik fyrir RÚV
Íþróttaefni ársins ársins
HM stofan – HM kvenna í fótbolta
Framleiðandi RÚV
Stuttmynd ársins
Blaðberinn
Framleiðandi Hero Productions Iceland
Brellur ársins
Pétur Karlsson, Eva Sólveig Þórðardóttir og Haukur Karlsson
fyrir Ófærð 2
Búningar ársins
Margrét Einarsdóttir
fyrir Goðheima
Gervi ársins
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir
fyrir Ófærð 2
Handrit ársins
Silja Hauksdóttir, Gagga Jónsdóttir og Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir
fyrir Agnes Joy
Hljóð ársins
Gunnar Árnason
fyrir Agnes Joy
Klipping ársins
Kristján Loðmfjörð og Lína Thoroddsen
fyrir Agnes Joy
Kvikmyndataka ársins
Maria von Hausswolff
fyrir Hvítur, hvítur dagur
Leikari í aðalhlutverki ársins
Ingvar E. Sigurðsson
fyrir Hvítur, hvítur dagur
Leikkona í aðalhlutverki ársins
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
fyrir Agnes Joy
Leikkona í aukahlutverki ársins
Ída Mekkín Hlynsdóttir
fyrir Hvítur, hvítur dagur
Leikari í aukahlutverki ársins
Björn Hlynur Haraldsson
fyrir Agnes Joy
Leikmynd ársins
Hulda Helgadóttir
fyrir Hvítur, hvítur dagur
Leikstjórn ársins
Hlynur Pálmason
fyrir Hvítur, hvítur dagur
Sjónvarpsmaður ársins
Helgi Seljan fyrir Kveik
Tónlist ársins
Edmund Finnis
fyrir Hvítur, hvítur dagur
Upptöku- eða útsendingarstjórn ársins
Salóme Þorkelsdóttir og Gísli Berg
fyrir Söngvakeppnina 2019
Sjónvarpsefni ársins – Almenn kosning
Dominos körfuboltakvöld – Stöð 2 Sport
Heiðursverðlaun Eddunnar 2020
Spaugstofan