Valnefndir Edduverðlauna

Edduverðlaunin eru fagverðlaun. Í því felst að fagfólk í greininni, meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, veitir verðlaunin til þeirra sem skilað hafa framúrskarandi góðu verki á síðastliðnu ári.

Starf valnefnda er grundvöllur þess að verðlaunin standi undir nafni sem fagverðlaun. Til þess starfs er valið fólk sem hefur faglegar forsendur og metnað til að geta metið verkin af þekkingu og sanngirni.

Ferlið gengur svona fyrir sig: Framleiðendur ákveða hvaða efni þeir senda inn í Edduna ár hvert. Valnefndirnar fara yfir allt innsent efni og velja þau verk sem tilnefnd eru í hverjum flokki. Að lokum kjósa svo meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar á milli tilnefndra verka um það hver hlýtur Edduna í hverjum flokki fyrir sig. Í þeirri kosningu gilda atkvæði valnefnda 50% á móti atkvæðum ÍKSA meðlima.

Almennt um valnefndirnar:

Valnefndir, skipaðar af stjórn ÍKSA, skoða allt innsent efni og velja þau verk sem eru tilnefnd til Edduverðlaunanna. Valnefndirnar eru í gruninn fjórar. Valnefnd sjónvarpsefnis skiptist niður í þrjár nefndir og valnefnd fagverðlauna skiptast niður í sex minni nefndir:

  1. VALNEFND UM LEIKIÐ EFNI. Skoðar eftirfarandi flokka:
    Barna- og unglingaefni ársins; Kvikmynd ársins; Leikari ársins í aðalhlutverki; Leikari ársins í aukahlutverki; Leikið sjónvarpsefni ársins; Leikkona ársins í aðalhlutverki; Leikkona ársins í aukahlutverki og Stuttmynd ársins
  2.  VALNEFND UM SJÓNVARPSEFNI. Skoðar eftirfarandi flokka:
    Frétta eða viðtalsþáttur ársins; Menningarþáttur ársins; Mannlífsþáttur ársins, Skemmtiþáttur ársins og Sjónvarpsmaður ársins.

    1. Frétta eða viðtalsþáttur ársins & Barna- og unglingaefni ársins
    2. Menningarþáttur ársins; Mannlífsþáttur ársins
    3. Skemmtiþáttur ársins og Sjónvarpsmaður ársins
  3. VALNEFND UM HEIMILDAMYNDIR. Skoðar einn flokk:
    Heimildamynd ársins
  4. VALNEFND FAGVERÐLAUNA. Skoðar eftirfarandi flokka:
    Brellur ársins; Búningar ársins; Gervi ársins; Handrit ársins; Hljóð ársins; Klipping ársins; Kvikmyndataka ársins; Leikmynd ársins; Leikstjóri ársins og Tónlist ársins.

    1. Búningar og gervi:
    2. Brellur og leikmynd:
    3. Klipping og kvikmyndataka:
    4. Handrit og Leikstjórn:
    5. Hljóð og tónlist:
    6. Upptöku- eða Útsendingarstjórn og Íþróttaefni:

Allt að fimm aðilar skulu starfa í hverri valnefnd fyrir leikið efni og heimildarmyndir. Þrír aðilar sitja í hverri valnefnd fyrir sjónvarpsefni og þrír aðilar starfa í hverri fagverðlaunanefnd. Stjórn ÍKSA mun gæta þess að hafa kynjahlutföll sem jöfnust. Allir valnefndafulltrúar skulu vera meðlimir ÍKSA og leitast er eftir fulltrúum sem hafa sérþekkingu hvað varðar menntun og/eða starfa á sviði kvikmynda og sjónvarps.

Skilyrði þess að starfa í valnefnd er að viðkomandi sé ekki með innsent verk í þeim flokki sem nefndin er að skoða, né má einstaklingurinn hafa persónuleg tengsl við þá sem eru tilnefndir. Sérhver valnefndarmaður skal staðfesta með sannarlegum hætti að viðkomandi uppfylli skilyrði til að starfa í valnefnd samkvæmt framansögðu og að hann muni starfa eftir vinnureglum ÍKSA.

Nöfn allra valnefndarmanna skulu birt á vef ÍKSA (www.eddan.is) eftir að Eddan er um garð gengin, án þess þó að tiltaka hver sat í hvaða valnefnd.

Vinnureglur valnefnda:

1. Verk skal velja út frá tveimur meginforsendum:

  • Sköpun. Hér er átt við það skapandi framlag sem í verkinu felst, efnistök og listræn gæði.
  • Fagmennsku. Hér er átt við fagleg vinnubrögð, tæknilega úrvinnslu og samband áferðar og efnis.

Markmið valnefndar er að leiða fram þau verk sem sköruðu fram úr í hverjum flokki. Í sumum tilfellum er verið að bera saman ólík verk. Þá ber að horfa á hvert verk fyrir sig, skoða forsendur þess (hvað er verið að reyna að gera) og meta hvernig hefur til tekist miðað við þær forsendur.

2. Starf nefndarinnar fer þannig fram að nefndarmenn fá aðgang að því efni sem til greina kemur í viðkomandi flokki. Efnið er skoðað í gegnum aðgangsstýrt vefsvæði. Gera má ráð fyrir að nýjustu kvikmyndirnar geti nefndarmenn jafnvel skoðað í kvikmyndahúsi.

3. Þegar valnefndin hefur skoðað efnið, mun gefa þau fimm bestu verkum eða einstaklingum í hverjum flokki einkunn og raða niðurstöðunni inn í þar til gert Excel skjal/kjörseðil. Fremsta (og besta) verkið fær 10, það næst fremsta 8, þriðja 6, fjórða 4 og fimmta 2.

Mikilvægt er að raða hvorki fleiri né færri en fimm verkum/nöfnum upp í röð en kjörstjórn getur ekki tekið við kjörseðlum valnefndarmanna nema að uppfylltu þessu skilyrði.

Kjörseðillinn er að því loknu sendur í tölvupósti til kjörstjórnar, samkvæmt nánari leiðbeiningum. Fyllsta trúnaðar er gætt um atkvæði allra valnefndarmanna og atkvæði þeirra fara aldrei út fyrir veggi kjörstjórnar.

4. Valnefndum ber að skoða og dæma öll þau verk sem lögð eru fram í viðkomandi flokki. Stjórn ÍKSA hefur áður farið yfir allar innsendingar og tekið út þau verk sem ekki eiga heima í keppninni. Valnefndum er óheimilt að ákveða að einhver tiltekin verk eða tegundir verka komi ekki til álita.

5. Mikilvægt er að valnefndarmenn umgangist þau gögn sem þeir fá afhent af trúnaði. Um er að ræða kvikmyndaefni þar sem hætt er við að höfundarétti sé stolið. Því má alls ekki láta neinum öðrum í té það efni sem nefndarmenn fá aðgang að. Þess ber að geta að aðgangur að vefþjónum er skráður og kjörnefnd getur flett upp aðgangslistum.

6. Valnefndarmenn eru bundnir trúnaði um allt starf nefndarinnar bæði á meðan á vinnu hennar stendur sem og síðar. Ef upp koma álitamál eða spurningar skulu dómnefndarmenn hafa samband við stjórn ÍKSA sem sker úr um öll vafaatriði.

………

Valnefndarmenn Eddunnar 2022

Anita Briem
Arnór Pálmi
Ása Baldursdóttir
Ásta Briem
Ásthildur Kjartansdóttir
Björn Helgasson
Búi Baldvinsson
Charlotte Böving
Eilífur Örn Þrastarson
Ester Bíbí
Gunnar Björn Guðbjörnsson
Hákon Jóhannesson
Hákon Már Oddson
Helga Margrét Reinhardsdóttr
Hjálmar H. Ragnarsson
Hjálmtýr Heiðdal
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Ingibjörg Halldórsdóttir
Ingimar Davíðsson
Jónmundur Gíslason
Karl Óskarsson
Konráð Pálmason
Kristín Helga Karlsdóttir
Kristín Pálsdóttir
Lea Ævars
Ninna Pálmadóttir
Páll S Guðmudsson
Ragnar Bragason
Ragnar Pétur Pétursson
Sævar Jóhannesson
Sigríður Ragnar Sigurðsdóttir
Sigrún Erla
Sonja Bent
Steinunn Þórðar
Stella Önnudóttir Sigurgeirs
Svanhildur Hólm Valsdóttir
Vera Sölvadóttir
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
Þóra Tómasdóttir
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir