Netvarpið styður Edduna 2012
•Netvarpið hefur gerst bakhjarl Eddunar 2012. Netvarpið mun sjá um vistun og streymi á öllu efni sem sent er inn í öruggu og vörðu streymiskerfi sínu. Valnefndarnefnd munu þannig geta skoðað allt efnið fram borið í sama formi hvort heldur er á fartölvum, IP sjónvarpi eða spjaldtölvum. Tryggt er að bestu mögulegu gæði séu á öllu efni, sé leiðbeiningu þeirra um upphal fylgt.
Skil á verkum í Edduna 2012 verða eingöngu rafræn. Eftir að innsendingarfresti lýkur, fá ábyrgðaraðilar aðgang að vörðu svæði þar sem þeir geta hlaðið inn kvikmyndaverkum. Verkin þurfa að vera tilbúin til innsendingar á eftirtöldu sniði:
- Myndkóðun H.264
- Rammastærð allt að 1280×720 px
- Bitrate allt að 2Mbps
- Hljóðkóðun AAC 48khz
- Bitrate allt að 128kbps
- Hinting virkjað ef mögulegt.
Hér eru forsnið fyrir Compressor, Adobe Media Encoder og Handbrake til að hlaða niður. Þessi skrá er ZIP skrá og nákvæmar leiðbeiningar eru í textaskjölum sem fylgja skránni.
Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían þakkar Netvarpinu stuðninginn!